Karfan er tóm.
Sjálfboðaliðar halda starfi íþróttafélaga og íþróttaliða gangandi. Án þeirra myndi allt stöðvast. Sjálfboðaliða starf og þáttur þess í rekstri Þórs/KA eins og annarra íþróttaliða og -félaga verður seint metinn til fjár og líklega óvinnandi vegur að mæla það í krónum og aurum.
Þór/KA hefur í gegnum árin átt þeirri gæfu að fagna að hafa innan sinna raða öfluga sjálfboðaliða sem eru ávallt reiðubúnir að leggja hönd á plóg við hin ýmsu verkefni. Þar má nefna stjórnarstörf, fjáröflunarverkefni af mjög fjölbreyttum toga, ferðalög, viðburðastarf, utanumhald í kringum lið og leikmenn, undirbúning fyrir leiki, framkvæmd leikja, gæsla, boltasækjar, miðasala, sjoppuvinna, grilla hamborgara og svo framvegis. Óteljandi verk sem mörg hver eru unnin í hljóði og á bakvið tjöldin og verða hinum almenna áhorfanda eða stuðningsmanni seint sýnileg og ef til vill enginn tekur eftir, nema þá að ef störfin eru ekki unnin þá myndum við öll taka eftir því.
Ljósmyndarar eru iðnir við að mæta á leikina okkar og fyrir það erum við þakklát. Ármann Hinrik hefur mætt á flesta heimaleiki okkar á þessu ári og í fyrra, en einnig hafa Þórir Ó. Tryggvason, Egill Bjarni Friðjónsson, Sævar Geir Sigurjónsson, Páll Jóhannesson og Skapti Hallgrímsson verið tíðir gestir á leikjum okkar í gegnum tíðina. Fyrir það erum við þakklát. Vð höfum einnig getað leitað til þeirra þegar við höfum þurft á að halda í tengslum við aðra viðburði.
Til gamans eru hér teknar saman nokkrar af myndum Ármanns Hinriks af sjálfboðaliðum við störf á leikjum okkar undanfarin tvö ár. Þessar myndir sýna þó aðeins brotabrot af þeirri vinnu sem liggur að baki því að halda úti öflugu íþróttastarfi og sigursælasta knattspyrnuliði Norðurlands um áraraðir og því fólki sem komið hefur að starfinu.
Nokkur af myndasöfnum úr leikjum sumarsins má finna hér á vefnum - sjá hér.
Takk fyrir, sjálfboðaliðar!