Karfan er tóm.
Þór/KA vann öruggan sigur á liði FHL þegar liðin mættust í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði föstudaginn 27. febrúar. Ekki hefur gefist tími til að segja frá leiknum hér á síðunni fyrr en nú - en betra er seint en aldrei. Tvær voru í fyrsta skipti í byrjunarliði í meistaraflokki Þórs/KA og tvær skoruðu sitt fyrsta mark með meistaraflokki félagsins.
Um leikinn þarf kannski ekki að fjölyrða. FHL tefldi fram mjög ungum leikmönnum í þessum leik eins og öðrum leikjum liðsins í mótinu, engum erlendum leikmönnum.
Það tók leikmenn Þórs/KA um 19 mínútur að koma inn fyrsta markinu. Margrét Árnadóttir fékk þá sendingu fyrir markið frá systur sinni, Amalíu, og skoraði af öryggi. Margrét var í fyrsta skipti í byrjunarliði hjá Þór/KA síðan í byrjun september í fyrra. Hún kom inn á sem varamaður í síðasta leik og spilaði fyrri hálfleikinn í gær.
Eftir mark Margrétar var aldrei spurning hvert stefndi. Hulda Björg Hannesdóttir bætti við öðru markinu fimm mínútum síðar eftir hornspyrnu, og aðeins þremur mínútum eftir mark Huldu Bjargar skoraði Bríet Fjóla Bjarnadóttir þriðja mark Þórs/KA og sitt fjórða mark í mótinu. Þá var komið að Huldu Ósk. Hún skoraði á 32. mínútu og aftur á lokamínútu fyrri hálfleiksins. Þór/KA með 5-0 forystu eftir fyrri hálfleikinn.
Hulda Ósk hélt svo uppteknum hætti og kláraði þrennuna eftir átta mínútna leik í seinni hálfleiknum. Eftir þrennuna hjá Huldu Ósk var um 20 mínútna bið eftir næsta marki. Ísey Ragnarsdóttir kom inn af varamannabekknum á 73. mínútu og aðeins mínútu síðar hafði hún skorað sjöunda mark liðsins, hennar fyrsta með meistaraflokki Þórs/KA. Amalía Árnadóttir skoraði áttunda markið þegar um sjö mínútur voru til leiksloka og Aníta Ingvarsdóttir lokaði dæminu með marki þremur mínútum síðar, hennar fyrsta með meistaraflokki Þórs/KA.
FHL - Þór/KA 0-9 (0-5)