Karfan er tóm.
Jöfnunarmark Erin Flurey á 90. mínútu leiks Þórs/KA og FH í 1. umferð Bestu deildarinnar í dag var 800. mark sem skorað er fyrir Þór/KA í efstu deild Íslandsmótsins.
Erin hefur aðeins leikið einn leik áður fyrir Þór/KA og var sá leikur einnig gegn FH. Þar skoraði hún þrennu á 40 mínútum í fyrri hálfleiknum í 4-2 sigri Þórs/KA. Hún er því komin með fjögur mörk í tveimur leikjum, eða raunar einum leik og einum hálftíma því hún var á varamannabekknum í dag, en var skipt inn á þegar rúmur hálftími var eftir. Nánar verður fjallað um leikinn hér á vefnum í kvöld eða á morgun.
Þór/KA spilaði í efstu deild árið 2000-2004 og aftur 2006 og hefur verið í efstu deild síðan. Nýhafið tímabil er það 24. í röðinni sem Þór/KA hefur spilað óslitið í efstu deild og 29. tímabilið alls í efstu deild.
Mörkin 800 hafa verið skoruð í 436 leikjum, eða 1,83 mörk að meðaltali í leik. Flest mörk á einu tímabili komu 2009, 64 mörk í 18 leikjum, eða 3,56 mörk í leik. Fæst urðu þau 2003, tíu mörk í 14 leikjum, eða 0,71 mark í leik.

Erin hleður í skotið sem færði Þór/KA annað stigið í leiknum í dag. Mynd: Ármann Hinrik.