Fjórar æfa með U16

Þór/KA á fjóra fulltrúa í U16 landsliðshópi sem æfir saman í Miðgarði í Garðabæ í dag og á morgun.

Þórður Þórðarson er þjálfari U16 landsliðsins og valdi hann 26 stelpur í æfingahóp, þar af fjórar frá Þór/KA. Það eru þær Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Eva Dolina Sokolowska og Ísey Ragnarsdóttir. 

U16 hópurinn - (ksi.is)

Fjórar valdar, þrjár æfðu með U15

Í lok janúar voru æfingar hjá U15 landsliðinu. Fjórar voru valdar frá Þór/KA, Aníta Ingvarsdóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir og Ragnheiður Sara Steindórsdóttir, en Bríet Fjóla gat því miður ekki farið að þessu sinni. Við fengum mynd af þeim þremur héðan sem æfðu með U15. 


Karen Hulda Hrafnsdóttir, Aníta Ingvarsdóttir og Ragnheiður Sara Steindórsdóttir í landsliðsgallanum þegar þær æfðu með U15 í lok janúar.

U15 hópurinn (ksi.is)