Fjórar frá okkur með U19 og U16

U19 hópurinn sem fer á lokamót EM U19. Mynd: KSÍ.
U19 hópurinn sem fer á lokamót EM U19. Mynd: KSÍ.

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir valdar í lokahóp U19. Karlotta Björk Andradóttir og Kolfinna Eik Elínardóttir fara með U16 á NM.

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir eru báðar á leiðinni í lokamót EM U19 í síðari hluta júlímánaðar, eins og reyndar búast mátti við. Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 landsliðsins, tilkynnti lokahópinn fyrir þetta verkefni í morgun. Mörg lið í Bestu deildinni eiga fulltrúa í hópnum og eins og hefur KSÍ tilkynnt félögunum að ef lið óskar eftir tilfærslu á leik eða leikjum vegna fjarveru leikmanna sem taka þátt í þessu verkefni muni verða orðið við því. Nóg er að annað liðið óski eftir slíkri breytingu. 

Lokamót EM hjá U19 kvenna fer fram í Belgíu í síðari hluta júlímánaðar. Leikdagar Íslands eru 18. júlí gegn Spáni, 21. júlí gegn Tékklandi og 24. júlí gegn Frakklandi. Undanúrslitaleikir fara fram 27. júlí og úrslitaleikurinn sunnudaginn 30. júlí. Á þessu tímabili á Þór/KA útileik gegn Breiðabliki 21. júlí og heimaleik gegn Þrótti 26. júlí, en þessi þrjú lið eiga öll fulltrúa í U19 landsliðshópnum. Þór/KA á svo útileik gegn FH næst á eftir áðurnefndum leikjum, 2. ágúst, en það fer auðvitað eftir árangri U19 liðsins á mótinu hvort þátttaka þess hefur áhrif á þann leik.


Ísfold Marý og Jakobína ráða ráðum sínum í leik með Þór/KA. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

Norðurlandamót í byrjun júlí

Þær Karlotta Björk Andradóttir og Kolfinna Eik Elínardóttir hafa báðar verið valdar í U16 landsliðið sem tekur þátt í Norðurlandamótinu. Þórður Þórðarson, þjálfari U16 landssliðsins, tilkynnti hópinn í morgun. Norðurlandamótið fer fram í Sundsvall í Svíþjóð dagana 5.-13. júlí.

Hópurinn sem tekur þátt í Norðurlandamótinu: