Fjórar frá Þór/KA á æfingum yngri landsliða

Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Karlotta Björk Andradóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir og Rebekka Sunna Brynjarsdóttir æfa þessa dagana með U15 og U16 landsliðum Íslands.

Þrjár frá Þór/KA eru í æfingahópi U16 landsliðsins, en hópurinn kom saman til æfinga í dag og æfir fram á miðvikudag. Þjálfari U16 landsliðsins er Margrét Magnúsdóttir. Æfingar liðsins núna eru liður í undirbúningi fyrir þátttöku í UEFA Development Tournament sem fram fer í Wales 10.-16. apríl. 

Það eru þær Karlotta Björk Andradóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir og Rebekka Sunna Brynjarsdóttir sem eru okkar fulltrúar í þessum hópi. 

Hér má sjá lista yfir allan hópinn: U16 æfingahópur.

Ein í U15 æfingahópi

Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir æfir þessa dagana með U15 landsliðshópnum, en þjálfari liðsins er Magnús Helgason. Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ í dag og tvo næstu daga.

Hér má sjá allan hópinn: U15 æfingahópur.