Fjórar frá Þór/KA í æfingahópi U19 landsliðsins

Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Amalía Árnadóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Steingerður Snorradótti…
Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Amalía Árnadóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Steingerður Snorradóttir æfa með U19.
- - -

Fjórar frá Þór/KA eru á leið á æfingar með U19 landsliðinu í dag og næstu daga og ein er á leið með U16 landsliðinu á æfingamót á Norður-Írlandi.

Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 landsliðsins, valdi 27 leikmenn fyrir æfingar U19 landsliðsins sem fara fram í dag og á morgun. Þar af eru fjórar frá Þór/KA, þær Amalía Árnadóttir, Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Steingerður Snorradóttir. 

U19 landsliðið býr sig undir þátttöku í milliriðli A2 fyrir EM þar sem mótherjarnir verða Austurríki, Írland og Króatía, en spilað verður í Krótatíu 2.-9. apríl. Sigurlið þessa riðils fer á lokamót EM sem fram fer í Litháen í júlí. 

Eva S. Dolina-Sokolowska hefur verið valin í hóp U16 ára landsliðsins sem tekur þátt í UEFA móti sem fram fer á Norður-Írlandi. Ísland, Belgía, Norður-Írland og Spánn mæta þar með U16 landslið sín til leiks. Nánar um það mót síðar.