Fjórar frá Þór/KA í úrtakshópi U17

Bríet Jóhannsdóttir, Angela Mary Helgadóttir, Krista Dís Kristinsdóttir og Sonja Björg Sigurðardótti…
Bríet Jóhannsdóttir, Angela Mary Helgadóttir, Krista Dís Kristinsdóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir.

 

Magnús Örn Helgason, þjálfari U17 landsliðs kvenna, hefur valið 29 leikmenn fyrir úrtaksæfingar U17 landsliðsins sem fram fara í Miðgarði í Garðabæ dagana 16.-18. Nóvember.

Þór/KA á fjóra fulltrúa í þessum hópi, en það eru Angela Mary Helgadóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Krista Dís Kristinsdóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir. Þær eru allar fæddar 2006.