Fótboltaskóli meistaraflokks 30. mars til 1. apríl

Leikmenn og þjálfarar meistaraflokks Þórs/KA verða með fótboltaskóla fyrir stelpur í 4.-7. flokki (2012-2019) í Boganum í næstu viku - dymbilvikunni, mánudag, þriðjudag og miðvikudag.
 
Boðið verður upp á skemmtilegar æfingar, skipt eftir aldri. Æfingatíminn er 80 mínútur hvern dag og boðið upp á létta hressingu. Posi á staðnum við mætingu fyrsta daginn - en einnig hægt að fá kröfu í heimabanka ef óskað er.
 
Uppfært: Búið er að setja inn greiðsluseðla í heimabanka hjá þeim sem skráðu kennitölu greiðanda. Fyrir aðrar er hægt að greiða við komu á fyrstu æfingu á mánudaginn. Við verðum með posa á staðnum, en einnig hægt að greiða með peningum.
 
Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 27. mars.