Frítt á leik Þórs/KA og Þróttar

Þór/KA tekur á móti Þrótti í 14. umferð Bestu deildarinnar þriðjudaginn 23. ágúst kl. 18. Frítt er á völlinn.

Þór/KA er í harðri fallbaráttu núna þegar fimm umferðir eru eftir, situr í 8. sætinu með 10 stig, en þar fyrir neðan eru Afturelding og KR. Þessi leikur og reyndar allir sem eftir eru í haust eru því mjög mikilvægir og nauðsynlegt fyrir liðið að rétta úr kútnum, fara aftur að skora mörk og vinna leiki. 

Ákveðið hefur verið að frítt verði inn á þrjá síðustu heimaleiki liðsins í Bestu deildinni í haust og vill stjórn félagsins þannig reyna að fá fleira stuðningsfólk á völlinn og mynda stemningu sem gæti verið sá aukakraftur sem þarf til að koma liðinu á beinu brautina. 

Fyrir leikinn gegn Þrótti verða grillaðar Goða pylsur í boði fyrir árskortshafa - og á góðu verði fyrir alla aðra vallargesti. 

Nú tökum við höndum saman og styðjum stelpurnar til að klára dæmið.

Staðan í deildinni, úrslit leikja og leikjadagskrá á vef KSÍ. Rétt er að benda á að heimaleikur gegn ÍBV sem átti að vera 10. september hefur verið færður til 14. september.