Fyrsti leikur hjá U17 í dag

Iðunn Rán Gunnarsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir verða í eldlínunni með U17 landsliðinu í fyrsta leik liðsins í milliriðli EM í dag.

 

Ísland mætir Finnlandi í fyrsta leik og hefst hann kl. 14 í dag. Írland og Slóvakía eru einnig með Íslandi í riðli.

Á vef UEFA - er hægt að finna upplýsingar um leikinn í dag og mótið.