Grillað við Greifavöllinn

Ekki missa af þessu!

Stelpurnar komu einhverjum á óvart í fyrsta leik í Bestu deildinni - en þó ekki sjálfum sér. Nú er tækifærið fyrir stuðningsfólkið að þjappa sér saman og styðja við bakið á stelpunum, liðinu og félaginu. Fyrsti heimaleikurinn verður á Greifavellinum mánudaginn 1. maí og hefst kl. 16.

Hamborgararnir verða bókstaflega „á eldi“ fyrir leik. Fátt sem toppar það að fara á skemmtilegan fótboltaleik og mæta snemma til að fá sér heitan borgara og kaldan drykk með öðru stuðningsfólki, spjalla um liðið, leikinn og sumarið fram undan og hita upp raddböndin fyrir leikinn.

Sjáumst á mánudaginn!