Karfan er tóm.
Hafdís Nína Elmarsdóttir er með U17 landsliðshópnum í Þýskalandi þar sem liðið tekur þátt í fyrstu umferð undankeppni EM 2027.
Íslenska liðið vann Tékkland í fyrsta leik sínum á föstudag, 3-0. Hafdís Nína kom inn af varamannabekknum alveg undir lok leiksins. Næsti leikur liðsins er í dag kl. 10.30 og lokaleikurinn á fimmtudag.
Leikir
Í íslenska U17 landsliðshópnum er einnig Bríet Fjóla Bjarnadóttir, fyrrum leikmaður Þórs/KA, og var hún í byrjunarliðinu í fyrsta leiknum, spilaði 83 mínútur. Þá er Auður Ósk Kristjánsdóttir úr Völsungi einnig í hópnum, en hún kom við sögu í fimm leikjum með sameiginlegu liði í 3. flokki, Þór/KA/VDK, í Íslandsmóti og bikarkeppni í sumar.

Hafdís Nína Elmarsdóttir fyrir miðju, ásamt Sigyn Elmarsdóttur og Bríeti Söru Níelsdóttur í leik með U16 liði Þórs/KA/VDK í haust. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

Auður Ósk Kristjánsdóttir úr Völsungi í leik með U16 liði Þórs/KA/VDK fyrr í haust. Auður Ósk er í U17 hópnum sem tekur þátt í fyrstu umferð undankeppni EM 2027, en kom ekki við sögu í fyrsta leik liðsins. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.