Happdrætti - vinningaskrá

Dregið hefur verið í happdrætti meistaraflokks Þórs/KA. Alls voru 40 vinningar að samanlögðu verðmæti yfir 1,4 milljónir króna.

Leikmenn sem sáu um sölu happdrættismiðanna munu einnig sjá um að koma vinningum til vinningshafa - sú sem seldi þér miðann hefur samband og/eða kemur til þín með vinninginn. 

Það verður þó ekki að ráði fyrr en um helgina sem afhending vinninga hefst því við erum að fá inn síðustu gjafabréfin og að auki verða leikmenn í burtu vegna bikarleiks á föstudaginn.