Karfan er tóm.
Stjórn Þórs/KA og stjórn knattspyrnudeildar Völsungs hafa, ásamt markverðinum Hörpu Jóhannsdóttur, gengið frá lánssamningi milli félaganna og hafa tilkynnt tímabundin félagaskipti Hörpu í Völsung. Félagaskiptin hafa þegar tekið gildi.
Harpa Jóhannsdóttir á að baki 132 leiki í meistaraflokki, þar af 65 í efstu deild með Þór/KA. Af leikjunum 132 eru 109 með Þór/KA og 23 með Hömrunum þar sem hún lék á lánssamningi 2018.
Harpa hefur verið allan sinn feril í röðum félagsins, kemur úr yngri flokkum KA og var ung komin í meistaraflokkshópinn hjá Þór/KA. Harpa er samningsbundin Þór/KA út tímabilið 2026, en fyrsta samningur hennar við félagið tók gildi 1. janúar 2015, þegar Harpa var tæplega 17 ára. Á yfirstandandi tímabili hefur Harpa leikið fjóra leiki með Þór/KA í A-deild Lengjubikarsins og einn í Mjólkurbikarnum.
Völsungur leikur í 2. deild og hefur spilað einn leik í deildinni það sem af er sumri, og vann þann leik. Liðið fór í úrslitaleik C-deildar Lengjubikarsins í vor, en tapaði þar naumlega fyrir liði Selfoss. Þá féll liðið einnig naumlega úr Mjólkurbikarnum í 16 liða úrslitunum með 1-0 tapi fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum.