Hildur Anna Birgisdóttir undirritar nýjan samning

Hildur Anna Birgisdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Þór/KA og er þar með samningsbundin félaginu út tímabilið 2028. 

Hildur Anna er 19 ára, fædd 2007, og hefur verið í vaxandi hlutverki með liðinu það sem af er tímabili. Hún hefur komið við sögu í 11 af 13 leikjum liðsins í Bestu deildinni það sem af er, þar af fimm sinnum verið í byrjunarliðinu. Hún kom fyrst við sögu með meistaraflokki í Lengjubikarnum 2023 og fyrst í Bestu deildinni sumarið 2024. Hún spilaði 19 leiki í Bestu deildinni 2024 og skoraði tvö mörk, en í fyrrasumar var hún með Þór/KA fyrri hluta sumar og síðan með Völsungi í 2. deildinni seinni hlutann á lánssamningi frá Þór/KA.

Samanlagt á hún að baki 59 meistaraflokksleik í Íslandsmóti, bikarkeppni og deildabikarkeppni, þar af 51 fyrir Þór/KA. Af þessum 59 leikjum eru 36 leikir í Bestu deildinni þar sem hún hefur skorað þrjú mörk.

Hildur Anna er miðjumaður með góðan leikskilning, mikið keppnisskap og baráttuvilja sem skila góðri frammistöðu inni á vellinum. Auk þess að hafa verið á mála hjá Þór/KA í meistaraflokki og gegnum yngri flokkana hefur Hildur Anna stundað þjálfun barna sem og verið iðin við dómgæslu.

Hildur Anna samdi fyrst við Þór/KA í maí 2024 og framlengir nú út tímabilið 2028.

Ármann Hinrik tók meðfylgjandi myndir af Hildi Önnu í leikjum með Þór/KA.

Hildur Anna Birgisdóttir Í leik gegn ÍBV 19. júlí 2026. Mynd: Ármann Hinrik.

Hildur Anna Birgisdóttir Í leik gegn ÍBV 19. júlí 2026. Mynd: Ármann Hinrik.

Hildur Anna í leik gegn Grindavík/Njarðvík 9. júlí 2026. Mynd: Ármann Hinrik.