Hulda Ósk framlengir!

Hulda Ósk Jónsdóttir og Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður Þórs/KA, við undirritun samningsins.
Hulda Ósk Jónsdóttir og Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður Þórs/KA, við undirritun samningsins.

 

Hulda Ósk Jónsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Þór/KA.

Hulda Ósk Jónsdóttir hélt utan til Bandaríkjanna síðastliðið sumar þar sem hún stundar nú mastersnám við hinn virta Notre Dame-háskóla í Indiana – og spilar þar fótbolta með liði skólans, að sjálfsögðu. Samningur Huldu Óskar við Þór/KA rann út núna um áramótin, en hún hefur nú ákveðið að vera áfram hjá okkur og hefur skrifað undir nýjan samning, 1+1 ár eins og það er kallað.

Hulda Ósk hóf ferilinn með Völsungi, fór þaðan í KR og svo í Þór/KA og hér hefur hún spilað frá 2016 þannig að komandi tímabil verður hennar sjöunda með Þór/KA. Hún á að baki 114 leiki í efstu deild (17 mörk) með Þór/KA og KR, en samtals 207 meistaraflokksleiki (41 mark) með þessum þremur félögum í deild, bikar, meistarakeppni, deildabikar og Evrópukeppni. Af þessum 207 leikjum eru 113 fyrir Þór/KA.

Miklar kröfur og mikill lærdómur í Notre Dame

Segja má að Hulda Ósk sé hreinræktaður sóknarmaður, hefur spilað í framlínunni, mest á öðrumhvorum kantinum með Þór/KA. En eftir að hún fór vestur um haf hefur hún fengið að kynnast fleiri stöðum á vellinum.

Hulda Ósk lætur vel af dvölinni vestra og segir hana hafa verið krefjandi: „Notre Dame er virkilega krefjandi staður og mikið ætlast til af þér námslega og fótboltalega séð. Ótrúlegar aðstæður með öllu sem þú þarft til þess að bæta ig með frábæru teymi þjálfara sem hugsa út í allt. Ég hef lært ótrúlega mikið og hlakka til að notfæra mér þessa reynslu í framtíðinni,“ segir Hulda Ósk um dvölina vestra. Hún kveðst spennt að halda áfram með Þór/KA. „Það eru spennandi tímar hjá Þór/KA og margar efnilegar stelpur að koma upp, ásamt fleiri gömlum,“ segir Hulda Ósk og kveðst hlakka til að sjá hvert það muni skila liðinu í sumar.

Það er mikið fagnaðarefni fyrir félagið að halda Huldu Ósk áfram í herbúðum okkar enda er hún skæð í sókninni og verður ein af þeim reyndustu í hópnum á komandi tímabilum.

Hér má sjá tölfræðiupplýsingar um Huldu Ósk á vef KSÍ.


Hulda Ósk í leik gegn Fylki sumarið 2021. Mynd: Þórir Tryggva


Hulda Ósk í leik gegn ÍBV sumarið 2021. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.