Ísfold Marý með U19

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir. Innfelda myndin er úr mynd Egils Bjarna Friðjónssonar frá leik Þórs/KA …
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir. Innfelda myndin er úr mynd Egils Bjarna Friðjónssonar frá leik Þórs/KA og Keflavíkur á dögunum.

 

U19 landsliðið kemur saman til æfinga í næstu viku. Þar eigum við einn fulltrúa, Ísfold Marý Sigtryggsdóttur.

Margrét Magnúsdóttir þjálfari U19 landsliðs kvenna hefur valið 26 leikmenn til æfinga sem fram fara í Skessunni í hafnarifrði dagana 24.-26. febrúar.

Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir þátttöku Íslands í milliriðli EM þar sem liðið mætir Englandi, Walels og Belgíu í Englandi dagana 6.-12. apríl.

Í frétt á vef KSÍ má sjá ítarlegri upplýsingar og hópinn sem valinn hefur verið.


Ísfold Marý í færi í leiknum gegn Keflavík í Lengjubikarnum á dögunum. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.