Ísfold og Jakobína að hefja leik með U19

Jakobína Hjörvarsdóttir og Ísfold Marý Sigtryggsdóttir verða í eldlínunni með U19 landsliðinu næstu …
Jakobína Hjörvarsdóttir og Ísfold Marý Sigtryggsdóttir verða í eldlínunni með U19 landsliðinu næstu daga.

 

Okkar stelpur eru báðar í byrjunarliði U19 landsliðsins sem hefur leik í undanriðli EM 2023 í dag.

Ísland mætir liði Liechtenstein í fyrsta leik í undanriðlinum og hefst leikurinn núna í morgunsárið að íslenskum tíma - kl. 9:00. Leikið er í Litháen. 

Mögulegt er að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á YouTube - smellið hér til að horfa.

Ísland er í riðli með Liechtenstein, Færeyjum og Litháen, en riðillinn er spilaður í Vilnius, höfuðborg Litháens.

Stelpurnar mæta Liechtenstein í dag, Færeyjum á föstudag og Litháen á mánudag. Sigurlið riðilsins fer upp í A-flokk og í milliriðil sem spilaður verður í mars. Þjálfari U19 landsliðsins er Margrét Magnúsdóttir.

Hér má sjá leikjadagskrána á vef KSÍ.

Hópurinn í dag - mynd af Facebook-síðu KSÍ.