Íslandsmótið að hefjast hjá 3. flokki

Núna um helgina og strax eftir helgina er komið að fyrstu leikjum hjá tveimur af liðunum okkar í 3. flokki. 

Þór/KA er með skráð tvö A-lið í Íslandsmótinu og eitt B-lið. A-liðin hefja keppni í A og C riðli í fyrstu lotunni. Fyrstu leikirnir eru á dagskrá á næstu dögum, en keppni B-liðanna hefst síðar.

Næstu leikir

  • A-riðill, lota 1
    • Laugardagur 2. mars kl. 15
      Víkingur - Þór/KA
      Víkingsvöllur
    • Sunnudagur 3. mars kl. 13:15
      Stjarnan - Þór/KA
      Samsungvöllurinn
  • C-riðill, lota 1
    • Mánudagur 4. mars kl. 17
      Völsungur - Þór/KA2
      PCC völlulrinn Húsavík