Jón Stefán og Perry ekki áfram hjá Þór/KA

Jón Stefán Jónsson og Perry John James Mclachlan. Mynd: Þórir Tryggva
Jón Stefán Jónsson og Perry John James Mclachlan. Mynd: Þórir Tryggva

 

Stjórn Þórs/KA hefur ákveðið að hvorugur aðalþjálfara meistaraflokks félagsins haldi áfram. Þessi niðurstaða hefur verið tilkynnt þjálfurunum.

Jón Stefán Jónsson og Perry Mclachlan, aðalþjálfarar Þórs/KA, höfðu báðir óskað eftir því við stjórn Þórs/KA að halda ekki áfram samstarfi sínu. Með því eru forsendur samninga við þjálfarana brostnar og áframhaldandi samtarf þeirra er því ekki lengur til skoðunar af hálfu stjórnar. Það er jafnframt niðurstaða stjórnar að ráða ekki annan hvorn þeirra sem aðalþjálfara áfram.

Stjórnin þakkar þjálfurunum samstarfið og þeirra framlag til Þórs/KA og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.

Stjórnin mun nú einbeita sér að því að finna og ráða nýja þjálfara.