Karen María kemur heim

Karen María Sigurgeirsdóttir - myndin er frá 2021.
Karen María Sigurgeirsdóttir - myndin er frá 2021.

Karen María Sigurgeirsdóttir er að snúa aftur heim í Þór/KA eftir að hafa verið í Kópavoginum frá haustinu 2021.

Karen María spilaði fyrstu leikina í meistaraflokki með Þór/KA 2017 og var í leikmannahópi félagsins sem vann Íslandsmeistaratitilinn það ár, auk þess að spila með Þór/KA/Hömrunum í 2. flokki. Hún var síðan lánuð hluta tímabilsins 2018 í Hamrana og spilaði þar 11 leiki í Inkasso-deildinni, en síðan aftur með Þór/KA síðsumars og haustið 2018 þegar liðið tók þátt í Meistaradeild UEFA.

Karen María á að baki 129 KSÍ-meistaraflokksleiki fyrir Þór/KA, Hamrana og Breiðablik, auk 12 leikja í Meistaradeild UEFA, fjóra með Þór/KA 2018 og átta með Breiðabliki 2021 og 2022. Hún hefur spilað 78 leiki í efstu deild, þar af 61 með Þór/KA og 17 með Breiðabliki. Þá á hún að baki einn A-landsleik og 14 leiki með U19 og U17 landsliðum Íslands.

Karen María er fædd og uppalin á Akureyri, en samdi við Breiðablik haustið 2021 þegar liðið var á leið í riðlakeppni Meistaradeildar UEFA. Karen María er samningsbundin Breiðabliki út tímabilið 2024 og kemur á lánssamningi í Þór/KA.

Þór/KA býður Karen Maríu velkomna aftur í okkar hóp.