Karlotta og Kolfinna í beinni frá Færeyjum

Karlotta Björk Andradóttir og Kolfinna Eik Elínardóttir eru með U15 landsliðinu í Færeyjum.

Íslenska liðið hélt til Færeyja í upphafi vikunnar og mætti Færeyingum á þriðjudag. Okkar stelpur voru báðar í byrjunarliðinu í leik sem Ísland vann 5-1, eins og lesa má um í frétt á vef KSÍ.

Liðin mætast aftur í dag kl. 14 og verður hægt að sjá leikinn í beinni útsendingu á vef færeyska sjónvarpsins. Sjá einnig í frétt á vef KSÍ.

Hópurinn - á vef KSÍ.

Kolfinna Eik Elínardóttir og Karlotta Björk Andradóttir.