Keppnistreyja og stuðningsmannabolur til sölu á næstunni

Úr sigurleik Þórs/KA gegn Selfossi. Þegar valið er að merkja með nafni ásamt númerinu kemur nafnið á…
Úr sigurleik Þórs/KA gegn Selfossi. Þegar valið er að merkja með nafni ásamt númerinu kemur nafnið á milli Nettó og númersins, í sama lit og númerið. Mynd: Þórir Tryggva

 

Á næstu dögum verður sett af stað pöntunarferli þar sem stuðningsfólki okkar gefst kostur á að kaupa keppnistreyjurnar okkar, svarta og hvíta verða báðar í boði.

Einnig verður í boði sérstakur stuðningsmannabolur, bómullarbolur frá Macron, merktur Þór/KA ásamt þvía ð á bringunni verða tvær stjörnur og ártölin 2012 og 2017.

Þar sem keppnistreyjurnar eru sérframleiddar þarf ákveðið lágmarksmagn til að geta pantað þær og við þurfum líka að sýna smá þolinmæði því það tekur um tíu vikur að fá þær treyjur. Við getum þá vænst þess að fá þær í byrjun september, en þær verða svo auðvitað í fullu gildi áfram því liðin okkar spila í sömu treyjum á næsta ári. 

Keppnistreyjurnar verða með fullri merkingu, öllum lógóum, og að auki val um að fá þær með nafni og númeri, sem er innifalið í verðinu.

Við munum setja upp pöntunarsíðu eftir örfáa daga, með myndum, þar sem ykkur gefst kostur á að skrá inn pantanir. Athugið að greiða þarf fyrir treyjurnar og bolina þegar pantað er.

Verð

Stuðningsmannabolur: 5.000 kr.
Keppnistreyja: 15.000 kr.