Kimberley Dóra kölluð inn í U19

Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir í leik með Þór/KA gegn Stjörnunni. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir í leik með Þór/KA gegn Stjörnunni. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

Óvænt og ánægjuleg tíðindi bárust nú síðdegis. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir hefur verið kölluð inn í U19 landsliðshópinn sem er á leið til Belgíu þar sem lokamót EM U19 fer fram.

Þór/KA á því þrjá fulltrúa í landsliðshópnum, en áður höfðu þær Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir verið valdar í hópinn.

Ísland er með Spáni, Tékklandi og Frakklandi í riðli.

Leikirnir:

  • 18. júlí kl. 18:30 á Leburton Stadiom
    Ísland - Spánn
  • 21. júlí kl. 15:30 á Tivoli Stadium
    Ísland Tékkland
  • 24. júlí kl. 18:30 á RBFA Academy Stadium
    Ísland - Frakkland

Mótsvefurinn: WU19 (weuro-u19-belgium.com)