Kjarnafæðimótið: Sigur gegn Völsungi

Þór/KA mætti liði Völsungs í Kjarnafæðimótinu í gær. Uppskeran var sex marka sigur. Amalía Árnadóttir og Sandra María Jessen skoruðu tvö mörk hvor, Hulda Ósk Jónsdóttir og Una Móeiður Hlynsdóttir eitt hvor.

Leikmenn frá Þór/KA hafa hlaupið undir bagga með Húsvíkingum til þess að fullmanna lið Völsungs í Kjarnafæðimótinu. Í gær voru átta úr Þór/KA í leikmannahópi Völsungs, þar af fimm í byrjunarliðinu. 

Þór/KA náði forystunni strax á upphafsmínútunum og var með fimm marka forystu eftir fyrri hálfleikinn. Margar skiptingar voru gerðar í seinni hálfleiknum og aðeins eitt mark sem leit dagsins ljós. 

Þór/KA - Völsungur 6-0 (5-0)

  • 1-0 - Sandra María Jessen (3'). Stoðsending: Ísfold Marý Sigtryggsdóttir.
  • 2-0 - Amalía Árnadóttir (6'). Stoðsending: Emelía Ósk Krüger.
  • 3-0 - Hulda Ósk Jónsdóttir (17'). Stoðsending: Karen María Sigurgeirsdóttir.
  • 4-0 - Sandra María Jessen (32'). Stoðsending: Hulda Björg Hannesdóttir.
  • 5-0 - Amalía Árnadóttir (34'). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
  • 6-0 - Una Móeiður Hlynsdóttir (83'). Stoðsending: Sonja Björg Sigurðardóttir.

Eins og sjá má hér að ofan eru sex mismunandi leikmenn sem eiga stoðsendingar í mörkunum og aðeins ein sem bæði skoraði og átti stoðsendingu, Hulda Ósk.