Kjarnafæðimótið: Þór/KA mætir Tindastóli í dag

Bestudeildarliðin tvö, Þór/KA og Tindastóll, mætast í Kjarnafæðimótinu í dag. Leikurinn fer fram í Boganum og hefst kl. 15.

Þór/KA hefur unnið báða leiki sína til þessa í mótinu, en Tindastóll hefur spilað þrjá leiki, unnið tvo og tapað einum. Liðin eru því jöfn að stigum, bæði með sex stig, en Þór/KA á leik til góða. Fyrir ofan þessi lið er Þór/KA2 með níu stig eftir þrjá leiki.

Úrslit leikja og stöðuna í kvennadeild Kjarnafæðimótsins má finna á vef KDN - sjá hér.