Kjarnafæðimótið: Þór/KA og Þór/KA2 í tveimur efstu sætunum

Bæði liðin saman með bikarinn að leik loknum.
Bæði liðin saman með bikarinn að leik loknum.

Þór/KA-liðin tvö sem skráð voru til leiks í Kjarnafæðimótinu mættust í Boganum miðvikudaginn 1. apríl í lokaleik mótsins. Þór/KA vann 3-1.

Erin Flurey kom Þór/KA yfir eftir níu mínútna leik. Hún fékk þá boltann eftir aukaspyrnu hjá hinu liðinu, kom honum út til vinstri þar sem Margrét Árnadóttir var mætt, Erin kom sér inn í teig, fékk boltann aftur inni í teig og skoraði.

Hildur Anna Birgisdóttir jafnaði snemma í seinni hálfleiknum. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir átti þá háa sendingu inn á teiginn, eftir að hafa farið upp allan hægri kantinn með boltann. Í teignum var Ísey Ragnarsdóttir sem náði að koma boltanum áfram til vinstri í teignum á Hildi Önnu sem skoraði af stuttu færi.

Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði þriðja markið eftir að Hulda Björg Hannesdóttir átti langa sendingu af eigin vallarhelmingi, inn fyrir vörn hins liðsins þar sem Bríet Fjóla var mætt og afgreiddi boltann í netið rétt innan vítateigslínunnar.

Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði svo þriðja mark Þórs/KA þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Hulda Björg átti þá sendingu inn á teiginn, boltinn barst til Bríetar Fjólu, en Harpa Jóhannsdóttir varði skot hennar. Þaðan barst boltinn til Huldu Óskar sem skoraði.

Þór/KA - Þór/KA2 3-1 (1-0)

  • 1-0 - Erin Flurey (9'). Stoðsending: Margrét Árnadóttir.
    - - -
  • 1-1 - Hildur Anna Birgisdóttir (54'). Stoðsending: Ísey Ragnarsdóttir.
  • 2-1 - Bríet Fjóla Bjarnadóttir (62'). Stoðsending: Hulda Björg Hannesdóttir.
  • 3-1 - Hulda Ósk Jónsdóttir (74').

 

Lokatölurnar urðu því 3-1. Þór/KA endar með 12 stig, vann alla sína leiki, reyndar einn með þeim hætti að andstæðingurinn gaf leikinn. Þór/KA2 vann þrjá leiki, gegn Dalvík, Tindastóli og Völsungi, en eini tapleikurinn var gegn Þór/KA.

Hópurinn að leik loknum, bæði lið og bikarinn.

Aftari röð frá vinstri: Eva S. Dolina-Sokolowska, Emelía Ósk Krüger, Allie Augur, Guðný Helga Geirsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Margrét Árnadóttir, Rósa Signý Guðmundsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Ragnheiður Sara Steindórsdóttir, Angela Mary Helgadóttir, Ásta Ninna Reynisdóttir, Amalía Árnadóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Ísabella Anna Kjartansdóttir, Agnes Birta Stefánsdóttir og Halla Bríet Kristjánsdóttir.

Fremri röð frá vinstri: Ísey Ragnarsdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir, Aníta Ingvarsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir, Auðbjörg Eva Häsler, Erin Flurey, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hulda Björg Hannesdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Júlía Karen Magnúsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, Diljá Blöndal Sigurðardóttir og Harpa Jóhannsdóttir.