Kjarnafæðimótið: Þór/KA2 með stórsigur í Boganum

Þór/KA2 vann Tindastól örugglega í þriðja leik sínum í Kjarnafæðimótinu þetta árið. Lokatölur urðu 12-0. Ísey Ragnarsdóttir skoraði fernu. Þór/KA2 hefur unnið alla þrjá leiki sína til þessa og mætir aðalliði félagsins í hreinum úrslitaleik um efsta sæti kvennadeildarinnar, en bæði liðin eru með níu stig úr þremur leikjum. Sá leikur er á dagskrá 7. mars.

Lið Tindastóls var fámennt í gær og fengu Skagfirðingar lánaða þrjá drengi úr Þór til að stækka hópinn. Þór/KA2 hafði engu að síður yfirburði frá byrjun og byrjuðu stelpurnar með látum, röðuðu inn sex mörkum á fyrsta hálftímanum.

Fyrsta markið kom á 3. mínútu og var skemmtilegt. Emelía átti þá fyrirgjöf af hægri kantinum, varnarmaður Tindastóls skallar boltann upp í loftið og Ísey tekur bakfallsspyrnu og boltinn fór í háum boga út að fjærstöng og í netið. Annað markið kom fimm mínútum síðar. Elísa Bríet tók þá stutta hornspyrnu á Emelíu, fékk boltann aftur og skaut með vinstri frá vítateigshorninu.

Birgitta Rún skoraði næstu tvö mörk, bæði eftir sending frá Evu. Þriðja markið kom á 15. mínútu þegar Eva sendi boltann fyrir frá hægri, Birgitta Rún tók við honum og negldi upp í markhornið við nærstöngina. Fjórða markið kom um sjö mínútum síðar þegar Þór/KA vann boltann eftir pressu á vörn Tindastóls. Eva tætti upp hægra megin, sendi fyrir markið og í þetta sinn var Birgitta Rún mætt á fjærstöngina og skoraði af stuttu færi.

Fimmta markið kom einnig eftir fyrirgjöf frá hægri. Emelía tætti framhjá varnarmönnum, sendi fyrir og þar var Hafdís Nína fyrir miðju marki, tók boltann á lofti, sendi á Ísey sem skoraði sitt annað mark. Ísey kláraði svo þrennuna stuttu síðar þegar Ragnheiður Sara átti fyrirgjöf frá vinstri og Ísey kláraði færið úr markteignum. Sex marka forysta eftir fyrri hálfleikinn.

Síðasta korterið í fyrri hálfleiknum var með rólegra móti miðað við það sem á undan kom, og reyndar fyrsta korterið í seinni hálfleiknum einnig. Það var ekki fyrr en á 61. mínútu sem sjöunda markið kom. Karen Hulda átti þá sending úr vörninni, inn fyrir vörn Tindastóls, Eva spretti inn á teiginn, renndi boltanum fyrir markið og þar var Sigyn mætt, skaut í stöng og inn. Rétt um mínútu síðar vann Sigyn boltann af varnarmanni Tindastóls, boltinn barst til Emmu Júlíu sem sendi áfram á Ísey og hún skoraði sitt fjórða mark og sjöunda mark liðsins.

Ragnheiður Sara áttu næstu tvö mörk liðsins. Hún skoraði glæsilegt mark, áttunda mark liðsins, eftir að hún vann boltann af andstæðingi og skaut af um 20 metra færi upp undir þverslána. Níunda markið var keimlíkt því áttunda. Ragnheiður Sara vann boltann aftur fyrir utan teig og lét vaða á markið.

Bríet Fjóla skoraði svo tíunda markið eftir að Júlía Karen hafði unnið boltann á miðjunni, komið honum á Bríeti Fjólu sem skoraði með glæsilegu skoti fyrir utan teig. Það var síðan Sigyn sem skoraði sitt annað mark og 12. mark liðsins eftir að Karen Hulda sendi boltann inn á teig og hann barst á fjærstöng þar sem Sigyn var mætt.

Tindastóll - Þór/KA2 0-12 (0-6)

  • 0-1 - Ísey Ragnarsdóttir (3').
  • 0-2 - Elísa Bríet Björnsdóttir (8'). Stoðsending: Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir.
  • 0-3 - Birgitta Rún Finnbogadóttir (15'). Stoðsending: Eva Dolina-Sokolowska.
  • 0-4 - Birgitta Rún Finnbogadóttir (22'). Stoðsending: Eva Dolina-Sokolowska.
  • 0-5 - Ísey Ragnarsdóttir (23'). Stoðsending: Hafdís Nína Elmarsdóttir.
  • 0-6 - Ísey Ragnarsdóttir (27'). Stoðsending: Ragnheiður Sara Steindórsdóttir.
    - - -
  • 0-7 - Sigyn Elmarsdóttir (61'). Stoðsending: Eva Dolina-Sokolowska.
  • 0-8 - Ísey Ragnarsdóttir (62'). Stoðsending: Emma Júlía Cariglia.
  • 0-9 - Ragnheiður Sara Steindórsdóttir (72').
  • 0-10 - Ragnheiður Sara Steindórsdóttir (79')
  • 0-11 - Bríet Fjóla Bjarnadóttir (79'). Stoðsending: Júlía Karen Magnúsdóttir.
  • 0-11 - Sigyn Elmarsdóttir (88'). Stoðsending: Karen Hulda Hrafnsdóttir.
  • Kvennadeild Kjarnafæðimóstins - leikjalisti, úrslit, staða

Hópurinn og skiptingar

  • Guðrún Lára Atladóttir (m)
  • Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Ásta Ninna Reynisdóttir (Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir 46'), Ragnheiður Sara Steindórsdóttir.
  • Elísa Bríet Björnsdóttir (Bríet Fjóla Bjarnadóttir 46'), Júlía Karen Magnúsdóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir (Emma Júlía Cariglia 46').
  • Eva Dolina-Sokolowska,  Hafdís Nína Elmarsdóttir,  (Sigyn Elmarsdóttir 46'), Ísey Ragnarsdóttir.

Tölur og fróðleikur

  • - Þór/KA mætti með fjóra varamenn til leiks, en áttu þó upphaflega að vera fimm. Aníta Ingvarsdóttir átti að byrja leikinn, en var ráðlagt að sleppa þessum leik vegna meiðsla eftir landsliðsæfingar með U17. Inn í byrjunarliðið í hennar stað kom Hafdís Nína Elmarsdóttir. Öllum fjórum varamönnunum var svo skipt inn á í leikhléinu.
  • 28 - Áhorfendur á leiknum voru 28.