Kröftug byrjun 3. flokks í C-riðli

Markaskorarar kvöldsins, frá vinstri: Ólína Helga Sigþórsdóttir, Júlía Margrét Sveinsdóttir, Emilía …
Markaskorarar kvöldsins, frá vinstri: Ólína Helga Sigþórsdóttir, Júlía Margrét Sveinsdóttir, Emilía Björk Óladóttir, Rebekka Sunna Brynjarsdóttir, Katla Bjarnadóttir og Nína Rut Arnardóttir.

Þór/KA2 sigraði Völsung í fyrsta leik sínum í C-riðli Íslandsmótsins í 3. flokki, lotu 1, á Húsavík í kvöld.

Rebekka Sunna Brynjarsdóttir var sannarlega á skotskónum í þessum fyrsta leik liðsins, en hún skoraði fimm mörk, Ólína Helga Sigþórsdóttir skoraði tvö og þær Emilía Björk Óladóttir, Júlía Margrét Sveinsdóttir, Katla Bjarnadóttir, Nína Rut Arnardóttir eitt mark hver.

Þór/KA vann semsagt Völsung með 11 mörkum gegn engu.

Leikskýrslan á vef KSÍ.

Næsti leikur á dagskrá hjá liðinu er strax á laugardaginn, 19. mars, þegar ÍBV kemur niður. Liðin mætast á KA-vellinum og hefst leikurinn kl. 14.

Leikjadagskrá og staðan í C-riðli, lotu 1, á vef KSÍ.