Karfan er tóm.
Fyrir leik Þórs/KA og ÍBV í Bestu deildinni í gær afhentu fulltrúar kvennakvöldsnefndar Þórs og KA styrk til þeirra fjögurra deilda og liða sem standa að kvennakvöldinu.
Kvennakvöldið hefur fest sig í sessi og hefur verið haldið í maímánuði undanfarin ár. Eitt af markmiðunum með kvennakvöldinu er að afla fjár til rekstrar kvennaliðanna í boltaíþróttunum hjá Þór og KA og skiptist ágóðinn jafnt á fjórar deildir og lið; knattspyrnulið Þórs/KA, handboltalið KA/Þórs, körfuknattleiksdeild Þórs og blakdeild KA.
Fulltrúar kvennakvöldsnefndarinnar, þær Eva Björk Halldórsdóttir og Linda Guðmundsdóttir afhentu fulltrúum þessara deilda/liða afrakstur kvennakvöldsins fyrir leik Þórs/KA og ÍBV í Bestu deild kvenna í gær.
Þór/KA færir kvennakvöldsnefndinni og öllum sem gerðu kvöldið mögulegt og glæsilegt bestu þakkir.

Frá afhendingu styrksins. Frá vinstri: Eva Björk Halldórsdóttir úr kvennakvöldsnefndinni, Kári Þorleifsson frá körfuknattleiksdeild Þórs, Lydía Gunnþórsdóttir og Bergrós Guðmundsdóttir frá KA/Þór, Auður Pétursdóttir og Kara Árnadóttir frá blakdeild KA, Dóra Sif Sigtryggsdóttir frá Þór/KA og Linda Guðmundsdóttir frá kvennakvöldsnefndinni.