Leikdagur hjá U19

Leikdagur hjá þessum.
Leikdagur hjá þessum.

Ísland og Noregur mætast í æfingaleik U19 landsliða í dag kl. 12, í beinni útsendingu á vef KSÍ.

Eins og fram hefur komið eru þrjár af okkar stelpum með U19 landsliðinu í þessu verkefni, þær Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Jakobína Hjörvarsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir. 

Leikur Íslands og Noregs hefst kl. 12 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á vef KSÍ - smellið hér til að horfa.

Tvær af okkar stelpum eru í byrjunarliðinu í dag, þær Ísfold Marý og Jakobína, en Kimberley Dóra byrjar á varamannabekknum.


Hópurinn í dag. Myndin er tekin af Facebook-síðu KSÍ

 

.