Leikdagur: Þór/KA - Tindastóll

Það er risaleikur á Þórsvellinum í kvöld þegar Þór/KA tekur á móti Tindastóli í 8. umferð Bestu deildarinnar.

Þessi leikur átti upphaflega að vera á Sauðárkróki, en skipt var á heimaleikjum og spilað á Þórsvellinum í kvöld, en á Króknum í lok ágúst.

Eftir átta umferðir er Þór/KA í 5. sæti deildarinnar með 12 stig, en liðið hefur unnið fjóra leiki og tapað fjórum. Tindastóll er í 8. sæti með átta stig.

Fyrir leik verður upphitun frá kl. 19, grillið á fullu á pallinum við Hamar, borgarar og kaldir drykkir og því engin ástæða til að hafa áhyggjur af kvöldmatnum, bara mæta tímanlega á leikinn.

Leikurinn sjálfur hefst kl. 20. Miðasala er í Stubb-appinu og við hliðið.

Tvær viðureignir í efstu deild

Þessi lið hafa aðeins mæst tvisvar í efstu deild enda hefur Tindastóll aðeins einu sinni áður spilað í efstu deild. Það var sumarið 2021.

Þór/KA vann þá fyrri leikinn á Sauðárkróki 2-1, þar sem Muriell Tiernan kom Tindastóli yfir í fyrri hálfleik, en Sandra Nabweteme skoraði tvívegis í seinni hálfleik, síðara markið á fjórðu mínútu uppbótartíma. Þór/KA vann seinni leikinn 1-0 og þar var það Karen María Sigurgeirsdóttir sem skoraði eina mark leiksins á 19. mínútu.  Þessi lið hafa einu sinni mæst í bikarkeppninni (2007) og einu sinni í Lengjubikarnum (2021), auk nokkurra leikja í Kjarnafæðismótinu.

Enn og aftur viljum við minna á mikilvægi þess að við mætum á völlinn og hvetjum stelpurnar, sýnum stuðning í verki.