Karfan er tóm.
Þór/KA tekur á móti FH í 1. umferð Bestu deildarinnar í dag kl. 16. Leikið er á nýja gervigrasvellinum sunnan við Bogann.
Þar sem umhverfi vallarins er ekki fullklárað eru áhorfendur á leiknum beðnir um að gæta varúðar.
Athugið: Þegar meistaraflokksleikir eru á nýja vellinum er Þórssvæðið lokað öðrum en liðunum, dómurum, gæslufólki og starfsfólki svæðisins, afmarkað með rauðu á myndinni. Íþróttafólk og almenningur geta því ekki notað grasvöllinn eða hlaupabrautirnar frá því klukkutíma fyrir leik og þar til eftir að leik lýkur.
