Leikur í Kjarnafæðismótinu í kvöld

Þór/KA og Tindastóll mætast í Boganum í kvöld kl. 18:15.

Þetta er fyrsti leikur beggja liða í mótinu, en áður hafði Þór/KA2 mætt liði FHL og unnið ellefu marka sigur.

Þetta er jafnframt síðasti leikurinn hjá Þór/KA á árinu og kjörið fyrir stuðningsfólk okkar að mæta í Bogann, hvetja stelpurnar áfram og ljúka árinu 2022 saman með sigri. 

Athugið að tímasetningu leiksins var breytt frá því sem upphaflega var áætlað, hann verður kl. 18:15, ekki kl. 20 eins og fyrst stóð í leikjadagskránni.

Þetta er jafnframt eini leikurinn hjá okkar liðum sem verður ekki streymt á Þór TV.