Lengjubikar: Sigur gegn FH, Erin Flurey með þrennu

Þór/KA vann FH í lokaleik liðanna í riðli 1 í A-deild Lengjubikarsins, en endaði í 3. sæti riðilsins og fór því ekki áfram í undanúrslit mótsins. Erin Flurey skoraði þrennu í sínum fyrsta leik fyrir félagið. 

Það voru ekki liðnar nema fimm mínútur þegar Erin Flurey, bandarískur leikmaður sem samdi við Þór/KA í janúar, skoraði sitt fyrsta mark í sínum fyrsta leik fyrir félagið. Tíu mínútum síðar bætti hún við öðru marki. Eva Marín Sæþórsdóttir minnkaði muninn í 2-1 á 18. mínútu, en Erin kláraði þrennuna á 40. mínútu og Þór/KA með 3-1 forystu í leikhléinu. Mörkin hefðu getað orðið fleiri, nóg af færum og Þór/KA mun hættulegri í fyrri hálfleiknum. Margrét Árnadóttir skoraði reyndar mark eftir undirbúning frá Erin, en það fékk ekki að standa.

Þór/KA tefldi einnig fram bandarískum markverði, Allie Augur, sem kom inn í stað Hörpu Jóhannsdóttur og spilaði seinni hálfleikinn. Báðar áttu þær góðan leik og fínar vörslur.

Amalía Árnadóttir skoraði fjórða mark Þórs/KA snemma í seinni hálfleiknum og Þór/KA með góð tök á leiknum. FH minnkaði muninn aftur í tvö mörk. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir skoraði annað mark liðsins þegar rúmar 20 mínútur voru til leiksloka. Bæði lið fengu tækifæri til að bæta við mörkum, en ýmist fóru skotin framhjá eða þá að markverðir og varnarmenn komust fyrir þau.

Þór/KA - FH 4-2 (3-1)

  • 1-0 - Erin Flurey (5'). Stoðsending: Elísa Bríet Björnsdóttir.
  • 2-0 - Erin Flurey (15'). Stoðsending: María Dögg Jóhannesdóttir.
  • 2-1 - Eva Marín Sæþórsdóttir (18'). 
  • 3-1 - Erin Flurey (40'). Stoðsending: Margrét Árnadóttir.
    - - -
  • 4-1 - Amalía Árnadóttir (51'). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
  • 4-2 - Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir (69').
  • Leikskýrslan.

Lengjubikarinn 2026 - leikir og lokastaða í riðli 1

Þór/KA endaði í 3. sæti riðilsins með níu stig, vann þrjá leiki en tapaði tveimur. Stjarnan var með stigi meira í 2. sætinu og Þróttur í efsta sæti með 12 stig. 

Tölur og fróðleikur