Lengjubikar: Tap í Laugardalnum

Þór/KA tapaði öðrum leik sínum í riðli 1 í A-deild Lengjubikarsins í gær. Liðið sótti Þrótt heim í Laugardalinn og urðu lokatölur 3-1 Þrótti í vil.

Fyrri hálfleikurinn var ágætur hjá Þór/KA, leikurinn í járnum og Þór/KA með yfirhöndina á góðum köflum, en því miður gekk þó ekki vel að skapa færin til að skora mörk. Það má því segja að það hafi verið nokkuð gegn gangi leiksins þegar Unnur Dóra náði forystunni fyrir Þrótt á 33. mínútu. Þróttur með eins marks forystu eftir fyrri hálfleikinn.

Byrjunin á seinni hálfleiknum gerði möguleika liðsins á sigri afar litla því eftir nokkurra mínútna leik komu tvö mörk með tveggja mínútna millibili frá gestgjöfunum og staðan skyndilega orðin 3-0. Þór/KA sótti svo aftur í sig veðrið þegar leið á seinni hálfleikinn, en það var ekki fyrr en á 81. mínútu sem Bríet Fjóla skoraði okkar fyrsta og eina mark í leiknum, eftir sendingu frá Anítu Ingvarsdóttur. Markið kom upp úr innkasti, Elísa Bríet og Emelía Blöndal léku sín á milli, Elísa sendi háan bolta fyrir þar sem Aníta vann einvígi við varnarmann Þróttar og vildu heimamenn reyndar meina að um brot hafi verið að ræða. Aníta renndi boltanum út á Bríeti Fjólu sem átti gott skot úti við stöng. Þar við sat og niðurstaðan 3--1 tap.

Þróttur - Þór/KA 3-1 (1-0)

  • 1-0 - Unnur Dóra Bergsdóttir (33').
  • 2-0 - Madison Jeanne Ditta (51').
  • 3-0 - Þórdís Elva Ágústsdóttir (53').
  • 3-1 - Bríet Fjóla Bjarnadóttir (81'). Stoðsending: Aníta Ingvarsdóttir.
  • Leikskýrslan
  • Staðan í riðlinum

Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Grindavík/Njarðvík, sem spilaður verður í Boganum laugardaginn 21. febrúar og hefst kl. 17.

Hópurinn og skiptingar

  • Harpa Jóhannsdóttir (m)
  • María Dögg Jóhannsdóttir (Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir 61'), Hulda Björg Hannesdóttir (f) (Karen Hulda Hrafnsdóttir 73), Arna Sif Ásgrímsdóttir (Agnes Birta Stefánsdóttir 46'), Bríet Jóhannsdóttir (Angela Mary Helgadóttir 73').
  • Hildur Anna Birgisdóttir (Hulda Ósk Jónsdóttir 61'), Karen María Sigurgeirsdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir.
  • Birgitta Rún Finnbogadóttir (Ísey Ragnarsdóttir 46'), Amalía Árnadóttir (Aníta Ingvarsdóttir 73'), Bríet Fjóla Bjarnadóttir.

Tölur og fróðleikur

  • 10 - Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir spilaði sinn 10. leik fyrir Þór/KA, en hún á einnig átta leiki fyrir Völsung í 2. deild í fyrrasumar.
  • 20 - Áhorfendur í stúku voru um 20 talsins, en eitthvað af fólki var í félagsheimilinu og horfði þaðan.
  • 170 - Karen María Sigurgeirsdóttir spilaði sinn 170. leik fyrir Þór/KA. Samtals er hún komin í 222 leiki fyrir Þór/KA, Hamrana og Breiðablik.