Lengjubikar: Þór/KA sækir FH heim í dag

Fjórði leikur Þórs/KA í A-deild Lengjubikarsins er á dagskrá í dag, útileikur gegn FH í Skessunni í Hafnarfirði. 

Fyrir leikinn er Þór/KA í efsta sæti riðils 2 með níu stig. FH og Víkingur eru með sex stig og Stjarnan fjögur. Víkingur á eftir einn leik, en hin liðin tvo.