Lengjubikarinn: AFTUR Breyttur leiktími á Þór/KA - FH

Athugið: Breyttur lekdagur
Athugið: Breyttur lekdagur

Ný breyting: Fyrsti leikur okkar í Lengjubikar hefur verið færður yfir á sunnudaginn 12. febrúar kl. 12:30 - í Boganum.

Lengjubikarinn er að fara á fullt og á Þór/KA fyrsta leik á sunnudagrinn, 12. febrúar. Leikurinn hefur verið færður af laugardeginum vegna veðurútlits. 

Fyrir leikinn er áformað að afhenda okkar stelpum bikarinn fyrir sigur í Kjarnafæðismótinu.  

Leikir okkar í Lengjubikarnum:

Sunnudagur 12. febrúar kl. 12:30 í Boganum: Þór/KA - FH (Þór TV)
Laugardagur 25. febrúar kl. 15:00 á KR-velli: KR - Þór/KA
Laugardagur 4. mars kl. 14 í Boganum: Þór/KA - Valur (Þór TV)
Laugardagur 11. mars á Þróttarvelli: Þróttur - Þór/KA
Sunnudagur 19. mars kl. 16:30 í Boganum: Þór/KA - Selfoss (Þór TV)

Birt með fyrirvara um mögulegar breytingar vegna veðurs, færðar og af öðrum ástæðum. 

Stuðningsfólk er hvatt til að mæta í Bogann á heimaleikina okkar - og þau sem eru á suðvesturhorninu á útileikina, og styðja stelpurnar okkar í verki. Það skiptir máli.

Mótið á vef KSÍ.