Lengjubikarinn: Fyrsti sigurinn í höfn

Þór/KA vann Grindavík/Njarðvík 1-0 í þriðja leik sínum í riðli 1 í A-deild Lengjubikarsins. Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði eina mark leiksins þegar tíu mínútur voru liðnar. Vítaspyrna fór forgörðum í fyrri hálfleiknum sem og fjölmörg tækifæri sem liðið skapaði sér í leiknum. Öflugur markvörður gestanna átti meðal annars þátt í því að sigurinn varð ekki stærri.

Markið kom eftir þunga sókn sem endaði með samvinnu milli Bríetar, Bríetar Fjólu og Huldu Óskar vinstra megin í teignum. Bríet Fjóla fékk boltann við vítateigshornið frá nöfnu sinni, kom honum áfram upp að endalínu þar sem Hulda Ósk reyndi að komast framhjá varnarmanni, en þaðan barst boltinn út á Bríeti Jóhannsdóttur, sem renndi honum til hliðar á Bríeti Fjólu og hún náði skoti sem góður markvörður gestanna réði ekki við.

Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0 (1-0)

Mark verður til: Hulda Ósk Jónsdóttir fékk boltann upp að endalínu vinstra megin í teignum, gerði tilraun til að komast framhjá varnarmanni, sem náði að pota boltanum frá, en beint til Bríetar Jóhannsdóttur, hún ýtti honum áfram til Bríetar Fjólu sem skaut af vítateigslínunni. Lauren Kellett, markvörður gestanna, náði ekki til boltans. Myndi: Ármann Hinrik.

Leikmenn Þórs/KA kom af krafti inn í leikinn og höfðu yfirhöndina allan tímann, einkum þó í seinni hálfleiknum þegar sóknir og skot dundu á marki gestanna. Samkvæmt lauslegri talningu áttu okkar leikmenn 27 marktilraunir í leiknum á móti tveimur, en þriðja og hættulegasta marktilraun gestanna endaði reyndar ekki með skoti heldur var bjargað í horn á síðustu stundu í skyndisókn þeirra á 90. mínútu. Nokkrum mínútum áður hafði Elísa Bríet Björnsdóttir átt skalla í stöng eftir hornspyrnu. Karen María Sigurgeirsdóttir átti svo skot í þverslá í viðbótartíma leiksins. Óhætt er að segja að þrjár til fjórar af marktilraunum okkar hafi verið dauðafæri, en auk vítaspyrnunnar sem fór forgörðum í fyrri hálfleiknum kom upp sams konar atvik inni í teig gestanna í þeim seinni, en þó ekki dæmd vítaspyrna.

Margrét Árnadóttir spilaði síðasta stundarfjórðunginn, en hún hefur ekki komið við sögu í keppnisleik síðan 6. september í fyrra þegar hún meiddist í leik gegn Stjörnunni í Bestu deildinni. Margrét var ekki lengi að láta til sín taka, komst í gott færi, en Lauren Kellett í marki gestanna sá við henni.

Margrét Árnadóttir kom inn á þegar um stundarfjórðungur var eftir og spilaði sínar fyrstu mínútur frá því í byrjun september, komst fljótt í gott færi, en Lauren Kellett, markvörður Grindavíkur/Njarðvíkur, sá við henni. Mynd: Ármann Hinrik.

Þetta var þriðji leikur liðsins í mótinu og fyrstu stigin sem liðið nælir sér í. Þór/KA er því með þrjú stig eftir fyrstu þrjá leikina. Næsti leikur liðsins er gegn FHL í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði.

Staðan í riðlinum

  • Stjarnan - 6 stig - 3 leikir (+12)
  • Þróttur - 6 stig - 2 leikir (+3)
  • Grindavík/Njarðvík - 3 stig - 2 leikir (+3)
  • FH - 3 stig - 2 leikir - (+1)
  • Þór/KA - 3 stig - 3 leikir (-3)
  • FHL - 0 stig - 2 leikir (-16)

Hópurinn og skiptingar

  • Harpa Jóhannsdóttir (m)
  • María Dögg Jóhannsdóttir (Agnes Birta Stefánsdóttir 68'), Hulda Björg Hannesdóttir (f), Arna Sif Ásgrímsdóttir (Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir 81'), Bríet Jóhannsdóttir
  • Hildur Anna Birgisdóttir (Karen Hulda Hrafnsdóttir 81'), Karen María Sigurgeirsdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir (Eva S. Dolina-Sokolowska 90+2').
  • Hulda Ósk Jónsdóttir (Aníta Ingvarsdóttir 75'), Amalía Árnadóttir (Margrét Árnadóttir 75'), Bríet Fjóla Bjarnadóttir

Byrjunarlið Þórs/KA: Arna Sif, Karen María, Bríet, Hulda Ósk, María Dögg, Bríet Fjóla, Hildur Anna, Amalía, Elísa Bríet, Harpa og Hulda Björg. Mynd: Ármann Hinrik.

Tölur og fróðleikur

  • - Leikurinn var fyrsta viðureign Þórs/KA og Grindavíkur/Njarðvíkur enda er um nýtt Suðurnesjalið að ræða, sameinað lið Grindvíkinga og Njarðvíkinga. Þór/KA og Njarðvík hafa aldrei mæst enda hefur ekki verið meistaraflokkslið kvenna þaðan. Grindavík 
  • 3 - Bríet Fjóla Bjarnadóttir hefur skorað þrjú mörk fyrir Þór/KA í þremur leikjum í Lengjubikarnum. Markið í gær var það fyrsta sem skilaði sigri og þremur stigum.
  • 75 - Um 70-80 manns mættu í Bogann og fylgdust með leiknum.
  • 168 - Margrét Árnadóttir spilaði síðasta stundarfjórðunginn í leiknum. Þetta eru fyrstu mínútur hennar í keppnisleik frá 6. september í fyrra þegar hún fór út af meidd i fyrri hálfleik gegn Stjörnunni. Síðan þá eru liðnir 168 dagar.