Þór/KA tapaði fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum í ár þegar liðið sótti Stjörnuna heim í Garðabæinn. Lokatölur urðu 5-3.
Stjarnan náði forystunni á 7. mínútu þegar Úlfa Dís fékk sendingu inn fyrir vörnina og fékk góðan tíma til að koma sér í færi. Sjö mínútum síðar jafnaði María Dögg í framhaldi af hornspyrnu. Karen María tók hornspyrnuna, sendi út á Hildi Önnu og hún átti nákvæma sendingu inn að fjærstöng þar sem María Dögg var mætt og skoraði af öryggi. Þegar rúmur hálftími var liðinn náði Stjarnan aftur forystunni eftir sjálfsmark hjá okkar liði. Staðan í leikhléi: 2-1.
Í upphafi seinni hálfleiks var ekki liðin mínúta áður en Stjarnan jók forystuna með þriðja marki sínu. Snædís María hafði komið inn af varamannabekknum í leikhléinu og var búin að skora eftir um 35 sekúndur. Tíu mínútum síðar skoraði Birna fjórða mark Stjörnunnar, staðan orðin 4-1. Sú staða var þó ekki á töflunni nema í sjö mínútur því á 63. mínútu fékk Karen María boltann frá varnarmanni Stjörnunnar, ætlaði að senda á Elísu Bríet en varnarmaður komst inn í sendinguna, þó ekki meira en svo að Elísa Bríet fékk boltann rétt utan teigs, spilaði inn í teiginn og skoraði af öryggi. Bríet Fjóla minnkaði svo muninn í eitt mark þegar hún fékk boltann eftir misheppnaða sendingu frá markverði Stjörnunnar. Bríet Fjóla komst inn í teiginn og skoraði með vinstri fæti upp í fjærhornið.
Mörkin tvö kveiktu von um að ná stigi eða stigum út úr leiknum, en sú von slokknaði þremur mínútum síðar þegar Úlfa Dís skoraði sitt annað mark og fimmta mark Stjörnunnar. Lokatölur 5-3 og stigin urðu eftir í Garðabænum.
Stjarnan - Þór/KA 5-3 (2-1)
- 1-0 - Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (7').
- 1-1 - María Dögg Jóhannesdóttir (14'). Stoðsending: Hildur Anna Birgisdóttir.
- 2-1 - Sjálfsmark (32').
- - -
- 3-1 - Snædís María Jörundsdóttir (46').
- 4-1 - Birna Jóhannsdóttir (56').
- 4-2 - Elísa Bríet Björnsdóttir (63').
- 4-3 - Bríet Fjóla Bjarnadóttir (85').
- 5-3 - Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (88').
- Leikskýrslan
- Staðan í riðlinum
Næsti leikur liðsins er einnig útileikur, þegar við sækjum Þrótt heim í Laugardalinn laugardaginn 14. febrúar kl. 15.
Hópurinn og skiptingar
- Harpa Jóhannsdóttir (m)
- María Dögg Jóhannsdóttir (Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir 88'), Hulda Björg Hannesdóttir (f), Arna Sif Ásgrímsdóttir (Angela Mary Helgadóttir 72'), Bríet Jóhannsdóttir (Karen Hulda Hrafnsdóttir 72').
- Hildur Anna Birgisdóttir (Agnes Birta Stefánsdóttir 46'), Karen María Sigurgeirsdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir (Aníta Ingvarsdóttir 72').
- Hulda Ósk Jónsdóttir (Birgitta Rún Finnbogadóttir 46'), Amalía Árnadóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Ísey Ragnarsdóttir 88').

Tölur og fróðleikur
- 1 - María Dögg Jóhannesdóttir og Elísa Bríet Björnsdóttir voru báðar í byrjunarliði Þórs/KA í leiknum og Birgitta Rún Finnbogadóttir kom inn af varamannabekknum í leikhléinu. Allar voru þær að spila sinn fyrsta opinbera keppnisleik í KSÍ-móti fyrir Þór/KA. Allar þrjár hafa þó komið við sögu í leikjum Þór/KA og Þór/KA2 í Kjarnafæðimótinu, og skorað mörk, en þeir leikir eru ekki viðurkenndir KSÍ-leikir.
- 1 - Þær María Dögg og Elísa Bríet notuðu líka tækifærið í þessum fyrsta leik og skoruðu báðar.
- 1 - Aníta Ingvarsdóttir (2009) og Karen Hulda Hrafnsdóttir (2009) komu báðar inn af varamannabekknum undir lok leiksins. Báðar voru að spila sinn fyrsta opinbera meistaraflokksleik fyrir Þór/KA, að Kjarnafæðimótum frátöldum, en báðar spiluðu leiki fyrir Dalvík/Reyni í Lengjubikar, Mjólkurbikar og 2. deildinni í fyrrasumar, Aníta 17 leiki og Karen Hulda 13 leiki.
- 35 - Þegar langt var liðið á fyrri hálfleikinn voru 35 áhorfendur á leiknum.