Lengjubikarinn: Tökum á móti Stjörnunni í dag

Lokaleikur liðsins í riðli 2 í A-deild Lengjubikarsins verður leikinn í Boganum í dag kl. 15. Stjarnan mætir norður.

Eins og áður hefur komið fram hefur Þór/KA nú þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins og þar með sæti í undanúrslitum. Einnig er orðið ljóst að mótherjinn í undanúrslitum verður Breiðablik, eins og í fyrra. Sá leikur fer fram í Boganum um næstu helgi.

Leikurinn í dag skiptir hins vegar máli upp á það hvaða lið endar í 2. sæti riðilsins. Stjarnan þarf á sigri að halda til að komast í undanúrslit. FH er núna í 2. sæti riðilsins, hefur lokið sínum leikjum og er með níu stig. Stjarnan er í 3. sæti með sjö stig og kæmist því í undanúrslitin með sigri í dag.

Leikur Þórs/KA og Stjörnunnar fer fram í Boganum og hefst kl. 15.