Lokaleikur kvennadeildar Kjarnafæðimótsins í kvöld

Þór/KA-liðin mætast í lokaleik Kjarnafæðimótsins í Boganum í kvöld.

Bæði lið hafa unnið alla þrjá leiki sína til þessa og því um hreinan úrslitaleik mótsins að ræða. 

Leikurinn hefst kl. 19:15 og er að sjálfsögðu hægt að treysta á góða skemmtun, eins og jafnan þegar Þór/KA stígur fæti á knattspyrnuvöll.