Karfan er tóm.
Þór/KA á marga fulltrúa á landsliðsæfingum og -verkefnum á næstunni. Tvær úr okkar röðum sem leika erlendis verða í A-landsliðshópnum í leikjum í byrjun mars, fjórar eru á leið á æfingar með U17 og fjórar með U16 landsliðinu í þessari og næstu viku.
Þær Sandra María Jessen og María Catharina Ólafsdóttir Gros eru báðar í A-landsliðshópnum sem Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari hefur valið fyrir fyrstu tvo leikina í undankeppni Heimsmeistaramótsins 2027. Verkefnið er af stærri gerðinni, útileikir gegn Spánverjum og Englendingum, tveimur af bestu landsliðum heims. Ísland leikur gegn Spáni á Estadio Municipal Catalia í Castellon de la Plana á austurströnd Spánar þriðjudaginn 3. mars. Laugardaginn 7. mars mætir íslenska liðið Evrópumeisturum Englands á City Ground í Nottingham.
Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U17 landsliðs kvenna, hefur valið 30 stelpur sem koma saman til æfinga í Miðgarði í Garðabæ 19.-20. febrúar. Þar á Þór/KA fjóra fulltrúa.
Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U16 landsliðs kvenna, hefur valið 30 stelpur sem koma saman til æfinga í Miðgarði í Garðabæ 24.-26. febrúar. Þar á Þór/KA fjóra fulltrúa.