Þór/KA mætir FH í átta liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar. Dregið var í höfuðstöðvum KSÍ núna í hádeginu.
Leikirnir í átta liða úrslitunum:
- Valur - Þróttur
- Þór/KA - FH
- Tindastóll - ÍBV
- Breiðablik - HK
Leikirnir eru samkvæmt mótakerfi KSÍ settir á miðvikudaginn 11. og fimmtudaginn 12. júní. Það verður þétt leikjadagskrá þá vikuna því Þór/KA á útileik við Þrótt 7. júní og heimaleik við Breiðablik 16. júní. Leikdagar og leiktímar hafa ekki verið staðfestir, en koma væntanlega inn á vef KSÍ síðar í dag eða á morgun.
Flestir vildu heimaleik - alveg sama um mótherja
Fyrr í vikunni deildum við könnun á Facebook þar sem spurt var hvaða mótherja fólk vildi að Þór/KA fengi og hvaða mótherja fólk byggist við að liðið fengi.
Hvaða lið langar þig til að Þór/KA mæti í átta liða úrslitunum? - Einn svarmöguleikinn í könnuninni varðandi óskamótherja var: „Alveg sama, bara fá heimaleik“. Okkar fólki finnst það skipta meira máli því 57% svarenda völdu þennan kost. Næstflestir völdu HK (23,8%), síðan Val (9,5%) og svo Tindastól og ÍBV (1,4%).
Hvaða lið giskarðu á að dragist á móti Þór/KA? - Þar voru FH og Þróttur efst á blaði (28,6%), síðan Breiðablik (23,8%) og svo íBV og HK (9,5%). Hér höfðu nokkrir þátttakendur í könnuninni greinilega rétt fyrir sér því andstæðingurinn verður FH.