Karfan er tóm.
Þór/KA tekur á móti FH í átta liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í dag. Leikurinn fer fram í Boganum og hefst kl. 17:30. Upphitun hefst í Hamri kl. 17.
Þessi lið hafa mæst fjórum sinnum í bikarkeppninni, alltaf á heimavelli FH. Leikurinn í dag verður því fimmta viðureign liðanna í bikarkeppni og sú fyrsta sem fram fer á Akureyri. Þór/KA hefur unnið þrisvar, en eitt skiptið var jafnt að lokinni framleningu og FH vann þá í vítaspyrnukeppni.
Hvorki Þór/KA né FH hefur unnið bikarkeppnina. Þór/KA hefur einu sinni farið í úrslitaleikinn, 2013, þegar liðið beið ósigur gegn Breiðabliki í úrslitaleiknum, 1-2. FH hefur ekki komist í úrslitaleik keppninnar.
Tveimur leikjum átta liða úrslitanna er nú þegar lokið og hafa ÍBV og Valur þegar tryggt sér sæti í undanúrslitunum. ÍBV vann Tindastól á útivelli, en Valur vann Þrótt. Lokaleikur átta liða úrslitanna verður svo viðureign Breiðabliks og HK í kvöld.
Hver einasti bikarleikur snýst auðvitað eins og alltaf um allt eða ekkert, annað liðið fer áfram í keppninni en hitt er úr leik. Það er því mikilvægt að fá góða mætingu í Bogann í dag og öflugan stuðning úr stúkunni. Það skiptir máli, eins og margoft hefur verið bent á og sannast í hverjum leik.