Ókeypis byrjendanámskeið fyrir knattspyrnudómara

Knattspyrnudómarafélag Norðurlands, KDN, og KSÍ, standa fyrir byrjendanámskeiði fyrir knattspyrnudómara miðvikudaginn 15. febrúar kl. 19:30.

Ókeypis aðgangur er á námskeiðið og er það opið öllum sem náð hafa 15 ára aldri. Námskeiðið fer fram í sal Einingar-Iðju í Skipagötu 14.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir:
- kynningarefni
- fræðsluefni
- skýringar
- skýringarmyndir

Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi. Þátttakendur sem ljúka unglingadómaraprófi hafa rétt til að dæma í 4. flokki og yngri, ásamt því að vera aðstoðardómarar upp í 2. flokk. Námskeiðið er um tvær klukkustundir og er 100% viðvera skilyrði.

Tekið er við skráningum í tölvupósti í thoroddur@ksi.is. Einungis staðfestar skráningar gefa rétt til setu á námskeiðinu.