Okkar konur létu til sín taka

Okkar konur í Rabat. Hulda Björg Hannesdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir, Jakobína Hjörvarsdóttir…
Okkar konur í Rabat. Hulda Björg Hannesdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir, Jakobína Hjörvarsdóttir og María Catharina Ólafsdóttir Gros.

Fulltrúar Þórs/KA í U23 landsliðinu létu til sín taka þegar liðið vann 3-2 sigur á Marokkó í æfingaleik sem fram fór í Rabat í Marokkó. Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði annað mark Íslands og Jakobína Hjörvarsdóttir átti lykilsendingu í því fyrsta.

Jakobína var sú eina af leikmönnum Þórs/KA sem hóf leikinn, en auk hennar var María Catharina Ólafsdóttir Gros, fyrrum leikmaður Þórs/KA og nú leikmaður Fortuna Sittard í Hollandi, einnig í byrjunarliðinu.


Byrjunarlið U23 landsliðsins í dag. Mynd: KSÍ.


Mynd: KSÍ.

Lentu undir, en svöruðu í seinni

Ísland misnotaði vítaspyrnu snemma leiks, en Marokkó náði forystunni í fyrri hálfleik og hélt henni þar til um 25 mínútur voru eftir af leiknum. Hulda Björg Hannesdóttir og Karen María Sigurgeirsdóttir komu inn sem varamenn þegar 62 mínútur voru liðnar af leiknum. Nokkrum mínútum síðar jafnaði íslenska liðið leikinn eftir góða fyrirgjöf frá Jakobínu sem vörn Marokkó mistókst að skalla frá. Boltinn barst til Bryndísar Örnu Níelsdóttur sem skoraði.

Karen María náði svo forystunni fyrir Ísland á 76. mínútu þegar hún fékk sendingu inn fyrir vörnina frá Kötlu Tryggvadóttur og kláraði færið af öryggi framhjá markverði Marokkó. Karen María þá búin að vera inni á vellinum tæpan stundarfjórðung.

Marokkó náði að jafna leikinn á 81. mínútu eftir vítaspyrnu þegar Jakobína lenti í því að fá boltann í höndina af stuttu færi eftir návígi, vítaspyrna dæmd. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving varði vítaspyrnuna, en sú sem tók spyrnuna var fyrst í boltann og skoraði.

Íslenska liðið svaraði svo fljótlega aftur þegar Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir náði forystunni á ný fyrir Ísland á 87. mínútu. Það dugði til sigurs, lokatölur 3-2 fyrir Ísland og okkar konur með góða frammistöðu í dag.

Liðin mætast aftur í æfingaleik á sama stað á mánudag.


Mynd: KSÍ.

Mörkin og upptaka af leiknum

Leiknum var streymt á YouTube-rás KSÍ. Hér að neðan er hægt að fara beint inn í upptökuna og sjá mörk Íslands hvert fyrir sig, en einnig að sjálfsögðu hægt að horfa á allan leikinn. 

1-1 - Bryndís Arna Níelsdóttir

1-2 - Karen María Sigurgeirsdóttir

2-3 - Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir