Önnur landsliðskona Filippseyja í okkar raðir

Dominique Randle, væntanlegur miðvörður í liði Þórs/KA.
Dominique Randle, væntanlegur miðvörður í liði Þórs/KA.

Þór/KA hefur samið við miðvörðinn Dominique Randle um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili.

Dominique Randle er fædd 1994 og er þessa dagana með landsliði Filippseyja, ásamt Tahnai Annis, sem einnig hefur samið við Þór/KA eins og við sögðum frá fyrir nokkru, á Spáni þar sem liðið tekur þátt í Pinatar Cup. Filippseyjar eru þar í riðli með Íslandi og þessi lið mætast einmitt í lokaleik riðilsins í kvöld kl. 19:30. Dominique spilaði með liði UCLA á háskólaárunum, en hún útskrifaðist þaðan 2017.

„Dominique er reynslumikill varnarmaður sem kemur til með að styrkja okkur mikið,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA. „Það hefur áður komið fram að við erum að leita eftir reynslu og aldri við styrkingu á liðinu fyrir tímabilið. Dominique færir okkur þessa þætti sem og gæði til að verjast og halda í boltann. Hún og Tahnai þekkjast vel úr landsliði Filippseyja og eiga sinn þátt í því að liðið er að fara í fyrsta sinn í lokakeppni HM.“

Við bjóðum Dominique Randle velkomna í okkar raðir.

Leik Íslands og Filippseyja verður streymt á KSÍ TV og Elevensports.com.

Dominique Randle í landsliðstreyju Filippseyja. Hún er í byrjunarliðinu í leiknum gegn Íslandi í kvöld, eins og Tahnai Annis og þar mæta þær meðal annars Örnu Sif Ásgrímsdóttur, en Tahnai og Arna Sif voru liðsfélagar hjá Þór/KA 2012-2014.