Karfan er tóm.
Júnímánuður verður rólegur hjá meistaraflokki í leikjum talið miðað við það sem á undan er gengið.
Eins undarlega og það hljómar, eftir átta leiki á fimm vikum frá 25. apríl til 30. maí eigum við aðeins tvo leiki í júnímánuði. Þar spilar inn í landsleikjahlé vegna verkefna A-landsliðsins og U19 í byrjun júní og svo aftur hlé vegna þátttöku U19 landsliðsins í lokamóti EM 29. júní til 10. júlí.
Valur og Þróttur verða andstæðingar okkar í komandi mánuði. Fyrst er það útileikur gegn Val 13. júní og svo heimaleikur gegn Þrótti 22. júní. Tíunda umferð mótsins hefur öll verið færð aftur fyrir síðustu umferð og er á dagskrá í byrjun september, en við áttum upphaflega að mæta FH á útivelli 29. júní, sem verður 6. september í staðinn.

Yngri lið Þórs/KA, U20 og þrjú U16 lið, eiga næg verkefni fram undan. Þar koma við sögu nokkuð margar úr meistaraflokki því eins og fólk sem fylgst hefur með Þór/KA hefur væntanlega tekið eftir eru margar í meistaraflokksliðinu gjaldgengar með liðunum í 2. flokki U20 og 3. flokki.
Leikjadagskrár yngri liðanna í júní eru birtar hér með fyrirvara um breytingar sem gætu orðið, en við höldum áfram að setja inn á samfélagsmiðlana okkar fréttir af leikjum og úrslitum.